Fisktæknibraut

Nemendur geta lokið prófi af fisktæknibraut og skilar hún nemendum með hæfni á 2. þrepi. Fisktæknibraut er 120 einingar og er byggð upp af kjarna, brautarkjarna, vinnustaðanámi og brautarvali. Fisktæknibraut er fyrir nemendur sem hafa starfað í nokkurn tíma við fiskvinnslu, nemendur þurfa að fara í raunfærnimat til að sjá hversu mikinn hluta af vinnustaðanámi er hægt að meta til eininga. Kjarninn er 29 einingar, brautarkjarninn er 27 einingar, vinnustaðanámið er 50 einingar og brautarvalið 14 einingar. Hyggi nemendur á áframhaldandi nám verða þeir að gæta að hlutfalli milli hæfniþrepa. Nemendur skipuleggja nám sitt á brautinni í samráði við námsráðgjafa eða umsjónarmann brautarinnar. Nemendur velja sér þá áfanga sem þeir vilja leggja áherslu á í frekara námi eða hafa þörf fyrir vegna atvinnu.

Forkröfur

Fisktæknibraut er fyrir nemendur sem hafa starfað í nokkurn tíma við fiskvinnslu, nemendur þurfa að fara í raunfærnimat til að sjá hversu mikinn hluta af vinnustaðanámi er hægt að meta til eininga.

Skipulag

Nemendur geta lokið prófi af fisktæknibraut og skilar hún nemendum með hæfni á 2. þrepi. Fisktæknibraut er 120 einingar og er byggð upp af kjarna, brautarkjarna, vinnustaðanámi og brautarvali. Kjarninn er 29 einingar, brautarkjarninn er 27 einingar, vinnustaðanámið er 50 einingar og brautarvalið 14 einingar. Hyggi nemendur á áframhaldandi nám verða þeir að gæta að hlutfalli milli hæfniþrepa. Nemendur skipuleggja nám sitt á brautinni í samráði við námsráðgjafa eða umsjónarmann brautarinnar. Nemendur velja sér þá áfanga sem þeir vilja leggja áherslu á í frekara námi eða hafa þörf fyrir vegna atvinnu. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi starfað í nokkurn tíma við fiskvinnslu og farið í raunfærnimat. Nauðsynlegt er að skipuleggja nám sitt vel og hvaða tíma ætlað er í námið. Hver námseining er skipulögð af kennara þannig að hann gerir ráð fyrir að nemandinn þurfi 3 daga miðað við 6-8 klukkustunda vinnu til að ljúka henni. Fimm eininga áfangi er því miðaður við að nemandinn skili 15 daga vinnu. Henni er síðan dreift yfir önnina. Vinna þarf jafnt og þétt allar vikur til að ná árangri.

Námsmat

Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni og úrlausnir þeirra eru fjölbreyttar. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að kynnast vinnuaðferðum skólans og mismunandi forritum sem hægt er að nota við verkefnavinnu. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.

Reglur um námsframvindu

Nemandi í fullu námi skal ljúka að lágmarki 15 einingum á önn. Skólameistari getur heimilað undantekningu frá þessari reglu vegna skilgreindra námsörðugleika, veikinda og annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Sjá nánari útfærslu í skólareglum.

Hæfnisviðmið

  • starfa í matvælaframleiðslu þar sem hámarksnýting hráefna og gæði afurða eru lykilatriði
  • fjalla um framleiðsluferli fiskveiða, vinnslu og neyslu fiskafurða (virðiskeðju)
  • sýna fyllstu aðgát og ábyrgð við stjórnun og umgengni við vélar
  • beita góðri almennri þekkingu í þeim fögum sem þeir hafa lagt stund á
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu sem tengist skilgreindu sérsviði
  • vera meðvitaðir um umhverfi sitt, njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • nýta þá kunnáttu sem þeir hafa öðlast til náms eða starfs sem tengist fiskvinnslu
  • stunda frekara nám

Almennur kjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Íslenska ÍSLE 2RB05 1UN03 3 5 0
Inngangur að náttúruvísindum INNÁ 1IN05 5 0 0
Stærðfræði STÆR 1GH03 3 0 0
Frumkvöðlafræði FRUM 1TR05 5 0 0
Enska ENSK 1UE03 3 0 0
Upplýsingatækni dreifmenntar UPPD 2UD05 0 5 0
Fisktækni FIST 1AF05 2AF05 5 5 0
Fiskvinnsluvélar FISV 2VR03 0 3 0
HACCP kerfi HCCP 2UV03 0 3 0
Hagfræði HAGF 2RÁ05 0 5 0
Samskipti og þjónusta SAMS 1SS03 3 0 0
Stoðkerfi sjávarútvegs STSJ 1VV03 3 0 0
Vinnustaðanám Fiskvinnsla VIFI 2SN20(FT) 2DD20(FT) 2ÓV10(FT) 0 50 0
Einingafjöldi 106 30 76 0

Brautarkjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Frumkvöðlafræði FRUM 2HN04 0 4 0
HACCP kerfi HCCP 2GV05 0 5 0
Fisktækni FIST 2RF06 0 6 0
Verkefnastjórnun VEST 2VS05 0 5 0
Vinnustaðanám Fiskvinnsla VIFI 2KV10(FT) 0 10 0
Einingafjöldi 30 0 30 0