STSJ1VV03 - Stoðkerfi sjávarútvegs

Veiðar og vinnsla

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist helstu þáttum er varða íslenskan sjávarútveg. Viðfangsefnin eru fjölbreytt, s.s.saga sjávarútvegs á Íslandi, lagaumhverfi, verðmætasköpun, tæknilegar nýjungar, skipaflotinn, veiðarfæri og helstu stofnanir sem tengjast sjávarútvegi og nýtingu sjávarafurða. Fiskveiðistjórnun, veiðiheimildir, auðlindanýting og hafrannsóknir eru skoðaðar og er áfanganum ætlað að vekja nemendur til umhugsunar um sjávarútveg og gildi hans fyrir íslensku þjóðina.

Þekkingarviðmið

  • starfsumhverfi sínu
  • þróun sjávarútvegs á Íslandi
  • samhengi hafrannsókna og veiðiheimilda
  • mikilvægi sjávarútvegs fyrir íslensku þjóðina
  • viðskiptum með sjávarafurðir
  • helstu stofnunum sem tengjast sjávarútvegi

Leikniviðmið

  • lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
  • taka þátt í umræðum um viðfangsefni áfangans

Hæfnisviðmið

  • hafa skoðun á málefnum er varða sjávarútveginn á Íslandi og taka þátt í umræðum
  • skilja umhverfi sjávarútvegs á Íslandi og getað sagt frá því
  • skilja tengingu milli sjávarútvegs og helstu stofnana sem tengjast honum
  • skilja umræðu um auðlindanýtingu, hafrannsóknir og veiðiheimildir
  • átta sig á tengslum viðfangsefna áfangans við aðra þætti samfélagsins
Nánari upplýsingar á námskrá.is