Samskipti, þjónusta
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Markmið áfangans er að styrkja nemendur í stjórnun, lögð er áhersla á mikilvæga og hagnýta þætti nútímalegrar stjórnunar þar sem nemandinn lærir að laða fram það besta í hverjum og einum starfsmanni og vera trúverðugur leiðtogi. Skoðaðar eru aðferðir við ráðningar, móttöku og þjálfun starfsmanna og lögð áhersla á að nemendur æfi sig í að nýta endurgjöf og hvatningu til að efla undirmenn sína. Farið er yfir árangursríkar leiðir til að takast á við erfið mál s.s. samskiptavanda, agamál og óánægju. Lögð er áhersla á mikilvægi samskipta og tillitsemi á fjölmenningarlegum vinnustað
Þekkingarviðmið
- mikilvægum og hagnýtum þáttum í stjórnun
- hvernig hægt sé að laða fram það besta hjá starfsmönnum
- aðferðum við ráðningu, móttöku og þjálfun starfsmanna
- leiðum til að takast á við erfið mál, t.d. samskiptavanda, agamál og óánægju
- mikilvægi samskipta og tillitsemi á fjölmenningarlegum vinnustað
Leikniviðmið
- vera góður, sjálfsöruggur stjórnandi
- beita endurgjöf og hvatningu til þess að efla undirmenn sína
- takast á við erfið mál er komið geta upp á vinnustað
- sjá fyrir og takast á við áskoranir sem tengjast fjölmenningarlegu umhverfi
Hæfnisviðmið
- takast á við hlutverk sitt sem stjórnandi af öryggi og festu
- vera betri stjórnandi en áður
- beita viðeigandi aðferðum við stjórnun á vinnustað
- taka á móti og þjálfa nýtt starfsfólk
- vera lipur í samskiptum og takast á við allar þær áskoranir sem upp geta komið á fjölmenningarlegum vinnustað
Nánari upplýsingar á námskrá.is