ÍSLE1UN03 - Undirbúningsáfangi í íslensku

undirbúningsáfangi í íslensku

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í lestri fjölbreyttra texta og umfjöllun um þá, bæði munnlega og skriflega. Rifjuð eru upp undirstöðuatriði í málfræði og stafsetningu. Í þessum áfanga er lögð áhersla á þjálfun í lestri og ritun texta. Nemendur fá þjálfun í hraðlestri og lesskilningi og lesa skáldsögu samhliða því. Einnig verður lögð áhersla á tjáningu og að koma efni skýrt frá sér í ræðu og riti.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum í ritgerðasmíð
  • málfræðihugtökum og stafsetningarreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
  • uppsetningu og frágangi ritsmíða
  • rafrænum orðabókum og réttritunarforritum
  • mismunandi orðaforða eftir aðstæðum
  • mikilvægi lestrar og helstu aðferðir við að tileinka sér hraðlestur

Leikniviðmið

  • rita mismunandi tegundir texta í samfelldu máli á skýran og skipulegan hátt
  • nýta málfræðihugtök til þess að efla eigin málfærni
  • nota leiðréttingarforrit og önnur hjálpargögn við stafsetningu
  • auka orðaforða og málskilning
  • lesa mismunandi texta sér til gagns

Hæfnisviðmið

  • semja stutta texta af ýmsu tagi með viðeigandi málsniði
  • skrifa réttan texta
  • tjá sig munnlega og skriflega á góðu máli
  • túlka og meta atburðarás, persónur og innihald í bókmenntum og öðrum texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is