upplýsingatækni dreifmenntar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að kenna undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingamennt. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér hugmyndafræði dreifnáms og læri að skipuleggja sig í námi.
Leitast er við að nýta frían hugbúnað og þann hugbúnað sem er fyrir
í tölvunni. Meðal annars prufa nemendur að vinna verkefni í ritvinnslu, töflureikni, myndvinnslu, hönnunarforriti, teikniforriti, vefhönnunarforriti, hljóðupptökuforriti. Nemendum er ekki bent á eitt forrit sem er réttara en annað heldur er þeim bent á nokkur forrit sem nýtast við úrvinnslu verkefnanna.
Áfanganum er ætlað að hjálpa nemendum að blanda saman verkþekkingu á tölvur og aðferðum og skipulagi í dreifnámi.
Þekkingarviðmið
- helsta opna hugbúnaði sem er í boði
- ritvinnslu og töflureikni
- myndvinnslu og hljóðvinnslu
- tölvum og internet
- lögum og reglum sem snúa að tölvum og interneti
- hugmyndum dreifnáms
Leikniviðmið
- setja upp verkefni og ritgerðir eftir viðurkenndum leiðum
- nota heimildir og tilvísanir eftir APA kerfinu
- nota algengustu formúlur, jöfnur og gröf í töflureikni
- búa til margmiðlunarefni eins og stuttmyndir, teiknimyndir og hljóðefni
- nota gagnasöfn, orðabækur, þýðingavélar og leiðréttingarforrit
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang verkefna
- afla upplýsinga eftir fjölbreyttum leiðum
- nota þau forrit og vefi sem eru í boði við verkefnavinnu
- nota google docs og ýmis önnur frí forrit og tól sem eru í boði hverju sinni
- verða sjálfbjarga í að finna út hvað þeir geta notað sér til aðstoðar við verkefnavinnu
Hæfnisviðmið
- geta metið efni af neti á gagnrýninn hátt
- geta metið í hvaða formi hentar best að skila efni frá sér hverju sinni
- hafa tileinkað sér grunnhugmyndir varðandi dreifnám
- skipuleggja nám sitt
Nánari upplýsingar á námskrá.is