VIFI2DD20(FT) - Vinnustaðanám 3

Vinna í vinnslu

Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Vinnustaðanám á Fisktæknibraut er samkvæmt ferilbók hverrar greinar. Við skipulag og framkvæmd er tekið mið af reglugerð 840/2011 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Tilsjónamenn sjá um að skrá námsframvindu og árangur. Þeir eru starfsmenn kennslufyrirtækja, í þessu tilviki jafnan verkstjórar. Umsjónamaður vinnustaðanáms í skóla, tilsjónamaður starfsþjálfunar og nemandi hafa regluleg samskipti um skipulag, framvindu og árangur starfsþjálfunar. Í starfsþjálfun er sérstaklega gætt ákvæða vinnuverndarlaga og reglugerða um vinnu barna og unglinga. Skipulagning vinnustaðanáms tekur tillit til öryggis, andlegs og líkamlegs heilbrigðis nemenda. Einstaklingar utan skóla eiga þess kost að gangast undir raunfærnimat. Þeir geta nýtt niðurstöður matsins til skipulagningar náms á framhaldsfræðslustigi, til styttingar náms á framhaldsskólastigi eða til staðfestingar á hæfni sinni á vinnumarkaði. Tilgangur starfsþjálfunar er að nemandi vinni öðlist leikni og hæfni í þeim störfum sem hann er að mennta sig fyrir.

Þekkingarviðmið

  • Meðferð sjávarafurða og ólíkum verkunaraðferðum

Leikniviðmið

  • Framkvæma mat á afurðum í sjávarútvegi
  • Framkvæmt mismunandi verkunaraðferðir á sjávarafurðum

Hæfnisviðmið

  • Miðla þekkingu sinni á meðferð sjávarafurða og ólíkum verkunaraðferðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is