ÍSLE2RB05 - Bókmenntir, málnotkun og ritun

bókmenntir, ritun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Í þessum áfanga er fjallað um bókmenntir, málsögu og goðafræði. Málsaga: Fjallað er um helstu þætti málsögu og nafnasiði. Bókmenntir og læsi: Nemendur eru þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka og einnig er ítarleg umfjöllun um goðafræði. Nemendur lesa eina nútímaskáldsögu og vinna verkefni í tengslum við hana og lesa eina valbók.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum í ritgerðasmíð
  • helstu þáttum íslenskrar málsögu og íslenskum nafnasiðum
  • mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði.

Leikniviðmið

  • lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun.

Hæfnisviðmið

  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
  • beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
  • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
  • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
  • tengja íslenskuna við fortíð og framtíð
Nánari upplýsingar á námskrá.is