Tröllaskagi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Markmið áfangans er að örva sköpunarkraft og auka djörfung nemenda og dug til að kasta sér út í ný verkefni þar sem útkoma er ekki fyrirfram gefin. Kostur er að verkefnin séu fjölbreytt og nemendur velji eitthvað sem þeir hafa áhuga á og gætu hugsað sér að vinna við eða að minnsta kosti nýta sér. Nemendur kynna sér viðfangsefni í heimabyggð. Hvað er til staðar? Hverju mætti bæta við? Viðfangsefni geta verið á sviði menningar og lista, tengst náttúru eða nýtingu náttúrulegra auðlinda, atvinnustafsemi, íþróttum eða annarri hreyfingu - en í raun takmarkast viðfangsefnin aðeins af hugmyndaflugi nemenda.
Fyrri hluti áfangans felst í kynningu á grunnatriðum sem hafa verður í huga við skipulagningu verkefna, svo sem verkáætlun, kostnaðaráætlun, skilgreiningu markhóps og markaðssetningu. Nemendur velja sér lokaverkefni í samráði við kennara. Verkefnin eru samvinnuverkefni.
Þekkingarviðmið
- hugarflæði við hugmyndavinnu
- helstu þáttum afþreyingar í nærsamfélagi
- mikilvægi góðra skilgreininga á hugmynd og verkefni
- mikilvægi áæltunar varðandi markhóp, verkþætti og kostnað
- gildi þess að hugsa í lausnum
Leikniviðmið
- virkja hugmyndaflugið
- meta hvaða upplýsinga og gagna er þörf við sköpun nýs verkefnis
- starfa í hóp þar sem virðing og jákvæð samskipti einkenna ákvarðanatöku
- deila réttlátlega ábyrgð á einstökum verkþáttum
- kynna eigin hugmyndir og verkefni
Hæfnisviðmið
- hugsa lausnamiðað
- gera verkáætlun sem hentar því verkefni sem hugmynd er að
- skipuleggja starf í hópi þannig að kraftar hvers og eins nýtist og allir séu sáttir við sinn hlut
- ráðast í verkefni þar sem árangur er óviss
- kynna eigin vinnu þannig að höfði til markhóps
Nánari upplýsingar á námskrá.is