16.10.2020
Þriðjudaginn 20. október hefst valvika fyrir vorönn 2021. Þá velja allir nemendur skólans sér áfanga fyrir komandi önn. Áfangaframboð má finna á vef skólans þar sem jafnframt eru áfangalýsingar. Auglýsingar frá kennurum vegna áfanga má sjá á Padlet-vegg. Nemendur eru beðnir að hafa samband við umsjónarkennara sína vegna valsins. Mikilvægt er að velja í valvikunni til að tryggja sér pláss í áföngum. Opnað verður fyrir innritun nýrra nemenda 1. nóvember.
Lesa meira
16.10.2020
Til eru aðferðir við að bæta líf sitt með skipulegum hætti. Nemendur í þessum áfanga hafa þjálfað samskipti, sjálfsaga, slökun og fleira sem gagnast við að ná betri tökum á námi og setja sér markmið fyrir framtíðina. Nemendur lærðu að hrósa og taka við hrósi frá öðrum, um styrkleika, fyrirmyndir, þakklæti og hamingju. Markmiðið er að kynnast sjálfum sér betur, bæta samskipti, auka sjálfstraust og draga úr kvíða. Nemendum finnst áfanginn áhugaverður og gagnlegur. Kennari er Sólveig Helgadóttir, ACC markþjálfi, sem hefur sérhæft sig í að leiðbeina ungu fólki. Vegna faraldursins fór nám í miðannaráföngunum þremur fram á jafn mörgum stöðum. Sólveig og nemendur hennar hafa haft bækistöð í Sandhóli, húsi Rauða krossins í Ólafsfirði.
Lesa meira
14.10.2020
Fjarkennt verður vikuna 19.-23. október en nemendum er frjálst að mæta í skólann og vinna saman innan ramma sóttvarnareglna. Ákvörðun um vikuna 26.-30. október verður tekin í næstu viku.
Lesa meira
04.10.2020
Vegna samkomutakmarkana verður fjarnám í MTR vikuna 5.-9. október, nemendur mæta samkvæmt stundaskrá í fjarkennslustofur sínar sem finna má í kennslukerfinu Moodle. Vikuna 12.-16. október er miðannarvika og full mæting í staðnámi frá 08:10 - 15:15 mánudag til föstudags. Skólinn er ekki lokaður og geta nemendur því komið og unnið í skólanum ef þeir svo kjósa.
Lesa meira
02.10.2020
Mikael Sigurðsson, nemandi á tónlistar- og náttúruvísindabraut MTR, gerði sérlega góða ferð á suðvesturhornið í síðustu viku. Auk þess að vinna Söngkeppni framhaldsskólanna með félögum sínum Herði Inga, Júlíusi og Tryggva tókst Mikael að sjá og mynda flækingsfuglana elrigreip og heiðatittling. Þar með hefur hann náð því marki, yngstur allra, að sjá og mynda 200 flækningsfugla hér á landi.
Mikael er aðeins 16 ára. Fuglana sá hann við Garðskaga og fylgja myndir hans af þeim með fréttinni. Það er heiðatittlingur sem var tvöhundraðasti fuglinn. Mikael hvetur fólk sem sér fugl sem það hefur ekki séð áður og gæti verið sjaldséður flækingur að láta sig vita eða tilkynna það á Birding Iceland á Facebook.
Lesa meira
28.09.2020
Ástarpungunum Júlíusi og Tryggva Þorvaldssonum, Herði Inga Kristjánssyni og Mikael Sigurðssyni var fagnað sérstaklega í skólanum í morgun. Tilefnið er auðvitað glæsilegur sigur þeirra í Söngkeppni framhaldsskólanna á laugardagskvöldið. Flaggað var fyrir köppunum og þeir sýndu verðlaunagripinn við stutta athöfn. Lára Stefánsdóttir skólameistari sagði þar að þeir hefðu frá upphafi vakið athygli í skólanum fyrir öguð vinnubrögð og skarpa sýn á hvað þeir vildu gera. Þeir hefðu verið skapandi í verkefnum sínum og náð árangri. Strákarnir eru allir nemendur á tónlistarbraut en stunda jafnframt nám á öðrum brautum. Lára sagði að fyrir alla í Menntaskólanum á Tröllaskaga væri árangur þeirra í söngkeppninni einstaklega ánægjulegur. Hún þakkaði þeim fyrir það sem þeir hefðu lagt á sig fyrir skólann og sagði að það væri frábært að hafa þá sem nemendur. Hún þakkaði jafnframt Guðmanni Sveinssyni og Katrínu Ýr Óskarsdóttur, kennurum sem aðstoðuðu þá við undirbúninginn fyrir keppnina.
Lesa meira
23.09.2020
Tryggvi Þorvaldsson, Hörður Ingi Kristjánsson, Júlíus Þorvaldsson og Mikael Sigurðsson eru
fulltrúar MTR í Söngkeppni framhaldsskólanna. Þeir leika jafnframt á eigin hljóðfæri, tvo
gítara, hljómborð og bassa. Keppnislagið þeirra verður I ́m gona find another you eftir John
Mayer. Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram í Kópavogi á laugardagskvöld. Keppendur
koma fram í sal án áhorfenda vegna heimsfaraldursins. Keppnin verður í beinni
útsendingu á RÚV. Hún hefst klukkan 20:00 og stendur í um það bil tvær klukkustundir.
Okkar menn eru með þeim síðustu á svið, sem þykir gott í keppni af þessu tagi.
Lesa meira
23.09.2020
Menntaskólinn fékk grænfánan afhentan í morgun. Katrín Magnúsdóttir, sem stýrir grænfánaverkefninu hjá Landvernd afhenti fánann, í fyrsta sinn með rafrænum hætti. Grænfánaverkefnið er alþjóðlegt og taka skólar í sextíu og átta löndum þátt í því. Það snýst um að breyta heiminum til hins betra. Menn eru hluti náttúrunnar og þurfa að gæta hennar fyrir komandi kynslóðir. Störf umhverfisnefndar MTR á síðasta skólaári eru forsenda þess að skólinn fær grænfánann nú afhentan. Starfinu verður fram haldið í vetur. Nemendur einstakra áfanga skiptast á um annast umhverfisverkefni í samhengi við námsefni hverju sinni.
Lesa meira
20.09.2020
Við höldum starfinu áfram eins og verið hefur, grímuskylda verður ekki sett á í bili í Menntaskólanum á Tröllaskaga heldur er það valkvætt fyrir nemendur og kennara. Grímur verða í skólanum fyrir þá sem vilja. Eins og við vitum geta fyrirmæli breyst hratt og mikilvægt að allir haldi sóttvarnareglur eins og verið hefur. Hrósa má nemendum sérstaklega fyrir seiglu og þá virðingu sem þeir hafa sýnt rými annarra í skólanum.
Lesa meira
16.09.2020
Á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis er að hefjast tilraunaverkefni sem snýst um
notkun á stafrænum lausnum til að auka aðgengi framhaldsskólanemenda að stoðþjónustu,
einkum geðheilbrigðisþjónustu. Menntaskólinn á Tröllaskaga er einn sex skóla sem taka þátt í
verkefninu sem verður unnið á tveimur árum. Það snýst um að tengja saman sérfræðinga, svo
sem náms- og starfsráðgjafa og sálfræðinga með fjarþjónustukerfinu Köruconnect. Þess er
vænst að verkefnið auki aðgengi nemenda að stuðningi og ráðgjöf, auðveldi starfsmönnum að
greina þarfir þeirra og að rýna veitta þjónustu eftirá. Innleiðing Köruconnect hefst síðar í
þessum mánuði og greiðir ráðuneytið kostnað við uppsetningu kerfisins og notkun þann tíma
sem tilraunin varir. Skólinn þróar notkun sína sjálfur í takt við þarfir nemenda.
Hinir skólarnir sem taka þátt í verkefninu eru Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólarnir á Akranesi
og í Ármúla, Menntaskólinn í Hamrahlíð og Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Lesa meira