Fréttir

Fjölmenni og fjör á opnun haustsýningar skólans

Haustsýning skólans var opnuð í dag og var mæting með allra besta móti. Ákveðið hafði verið að blása til nýrrar sóknar og gera sýninguna í skólahúsinu glæsilega úr garði. Undanfarin ár hafa verið lituð af áhrifum Covid faraldursins og sýningarhald að mestu leyti farið fram á vefnum en færri verkum stillt upp í skólanum. Nú var þessu öfugt farið og veggir skólans þaktir verkum jafnt fjarnema sem staðnema. Kenndi þar ýmissa grasa og til sýnis voru ljósmyndir, þrívíð verk og málverk nemanda af listabraut sem og skapandi verkefni nemanda af öðrum brautum. Vakin er athygli á því að valin verkefni eru einnig til sýnis á heimasíðu skólans. Ungum sýningargestum var boðið upp á að fást við jólaföndur af ýmsu tagi og taka með sér heim kerti sem steypt voru á staðnum úr kertaafgöngum, enda skólanum umhugað um endurnýtingu. Opnunardagurinn tókst eins og best verður á kosið og mun fleiri sóttu opnunina en síðustu ár. Sýningin verður opin til 20. desember á starfstíma skólans og er fólk hvatt til að líta inn og skoða afrakstur vinnu nemenda á haustönninni.
Lesa meira

Haustsýning og jólagleði

Að venju verður sýning á verkum nemenda í lok annarinnar og verður blásið til nýrrar sóknar í þeim efnum eftir nokkur róleg ár vegna áhrifa Covid faraldursins. Sýningin verður haldin föstudaginn 8. desember og stendur frá kl. 16.00 - 21.00. Milli 16.00 og 18.00 verða skemmtilegar vinnustofur og jólaföndur fyrir börn auk þess sem veitingar verða í boði. Á sýningunni má sjá fjölbreytt verk jafnt staðnema sem fjarnema; ljósmyndir og málverk nemanda af listabraut sem og skapandi verkefni nemanda af öðrum brautum. Einkunnarorð skólans: Frumkvæði - Sköpun - Áræði hafa verið í hávegum höfð við vinnu þessara verkefna og valin verkefni verða einnig til sýnis á heimasíðu skólans. Athygli er vakin á því að sama dag og sýningin er haldin er Jólakvöldið í Ólafsfirði og því tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi og njóta alls þess sem í boði verður á Ólafsfirði þennan dag.
Lesa meira

Nám til framtíðar

Menntaskólinn á Tröllaskaga er meðlimur í FLUID, sem eru dönsk samtök um fjarnám. Samtökin skipulögðu ferð á hina árlegu ráðstefnu Online Educa Berlin, OEB 2023, sem bar undirtitilinn “The 29th Annual Global Cross-Sector Conference and Exhibition on Digital Learning and Training “ og fór hún fram dagana 22. - 24. nóvember sl. Þátttakendur á ráðstefnunni voru um 2000 og þar af voru tveir kennarar frá MTR. Þema ráðstefnunnar í ár var “The learning futures we choose” .
Lesa meira

Nýbreytni í félagslífi nemenda

Eins og við höfum sagt frá hér áður er öflugt félagsstarf í skólanum sem stjórn nemendafélagsins Trölla leiðir. Félagsstarfið markast þó af þeirri staðreynd að staðnemar skólans koma frá nokkrum byggðakjörnum á Eyjafjarðarsvæðinu, allt frá Akureyri til Siglufjarðar, og ekki eru almenningssamgöngur á milli þeirra nema á daginn. Félagsstarfið er því að einhverju leyti bundið við skóladaginn en stakir stærri viðburðir eru á kvöldin s.s. jólakvöld, árshátíð og spila- og lankvöld enda nemendur oft uppteknir við vinnu eða að sinna félagsstarfi í sinni heimabyggð á kvöldin. Má þar t.d. nefna íþróttaæfingar og tónlistariðkun, margir starfa með ungliðasveitum björgunarsveita og einhverjir hafa stigið á leiksvið með leikfélögum á svæðinu, svo eitthvað sé nefnt. Á síðustu önn var tekin upp sú nýbreytni að nemendum MTR var boðinn aðgangur að félagsmiðstöðinni Neon í Fjallabyggð eitt kvöld í mánuði, að frumkvæði starfsfólks Neon. Hefur þessu samstarfi verið haldið áfram á þessari önn og opnunarkvöldin verið vel sótt. Félagsmiðstöðin er á Siglufirði og var tekin í notkun í fyrra. Hún er hin glæsilegasta og vel tækjum búin svo ungmennin hafa nóg við að vera.
Lesa meira

Ort af kappi

Undanfarna tvo daga hafa nemendur úr 8. - 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar komið í skólann til að yrkja. Tilefnið er hin árlega ljóðasamkeppni þessara bekkja sem er liður í ljóðahátíðinni Haustglæður sem haldin hefur verið í Fjallabyggð undanfarin 17 ár. Hátíðin er samstarfsverkefni Ljóðaseturs Íslands og Ungmennafélagsins Glóa en Grunnskóli Fjallabyggðar og Menntaskólinn á Tröllaskaga eru meðal þeirra aðila sem koma að framkvæmdinni. Nemendur nota listaverk sem innblástur að ljóðum og að þessu sinni voru sett upp verk eftir starfsfólk skólans og fyrrverandi nemendur hans. Þórarinn Hannesson kennari í MTR og forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands veitti nemendum góð ráð í ljóðagerðinni áður en haldið var af stað. Vel gekk hjá nemendum að setja í orð túlkun sína á þeim listarverkum sem prýddu veggi og tæplega áttíu ný ljóð urðu til. Næstu daga mun dómnefnd vega og meta afurðirnar og höfundar bestu ljóðanna verða svo verðlaunaðir. Úrslit verða kunngjörð á Ljóðasetri Íslands á Siglufirði í desember. Það er mikils virði fyrir skólann að fá ungmenni úr grunnskóla byggðarlagsins í heimsókn. Með því fá þau að kynnast andrúmsloftinu í skólanum sem eykur líkurnar á að þau sækist eftir skólavist þegar þar að kemur.
Lesa meira

Nemendur úr Grindavík og björgunaraðilar

Við höfum haft samband við alla nemendur, sem eiga lögheimili í Grindavík, vegna jarðhræringanna þar og þess ástands sem þær hafa í för með sér. Farið var yfir með hverjum og einum hvaða leiðir eru í boði og hvernig við áætlum að vinna með þeim út önnina. Sama á við björgunaraðila sem hafa verið við störf í Grindavík. Ef einhverjir hafa orðið útundan, búa í Grindavík en ekki með lögheimili þar eða eru við björgunaraðgerðir og hafið ekki haft samband vinsamlegast hafið samband við Birgittu umsjónarkennara fjarnáms, birgitta@mtr.is eða í síma 862 6987
Lesa meira

Nýr hjúkrunarfræðingur við skólann

Nýr hjúkrunarfræðingur hefur tekið við þjónustu heilsugæslunnar við nemendur MTR. Í síðustu viku kom hún í skólann til að kynna sig og þá þjónustu sem er í boði. Gaman er að segja frá því að þessi nýi hjúkrunarfræðingur er stúdent frá MTR, Elfa Sif Kristjánsdóttir, sem nýlega lauk námi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Þjónustan er á formi einstaklingsmiðaðrar ráðgjafar og áherslan er á vegvísi um heilbrigðiskerfið. Verður boðið upp á fræðslu og ráðgjöf við vægum vanda, s.s. tengdum geðheilbrigði, kynheilbrigði, félagslegum vanda og almennu heilbrigði. Þjónustan er til að auka geðheilbrigðisþjónustu við framhaldsskólanema og er viðbót við þá stuðningsþjónustu sem nú þegar er til boða í skólanum og er nemendum og skólum að kostnaðarlausu.
Lesa meira

Hrekkjavökugleði og annað félagsstarf

Í síðustu viku var Hrekkjavökunni fagnað hjá nemendafélagi skólans með hryllilegri samkomu í skólanum. Salur skólans var skreyttur hátt og lágt með graskerjum og viðeigandi verum og vefjum. Hryllingsmynd rúllaði á skjánum og nemendur klæddust ýmsum búningum í anda dagsins. Skemmtu allir sér hið besta. Það sem af er hausti hefur nemendafélagið Trölli staðið fyrir mörgum viðburðum. Gleðin hófst með nýnemadeginum þar sem farið var í ratleik um Ólafsfjörð, spilaður fótbolti og svamlað í sundlauginni og heitu pottunum. Síðan var haldið spilakvöld þar sem ýmis borðspil voru leikin og tvö lan-kvöld hafa verið haldin þar sem tölvuleikir áttu sviðið. Ekki má gleyma hinum vinsælu þemadögum en alla miðvikudaga mæta nemendur í skólann klæddir eftir mismunandi þemum og starfsfólkið tekur einnig virkan þátt. Undirbúningur fyrir jólakvöldið í desember er einnig hafin hjá nemendafélaginu en sá viðburður er sá stærsti á önninni í félagslífinu. Nemendaráði til halds og trausts við skipulag þessara viðburða er Hólmar Hákon Óðinsson, en rík áhersla er þó lögð á frumkvæði nemendanna sjálfra við hugmyndavinnu og framkvæmd.
Lesa meira

Innritun hafin

Innritun í fjarnám stendur nú yfir fyrir vorönn 2024. Vinsamlegast skráið umsóknir í gegnum heimasíðu skólans.
Lesa meira

Brunaæfing og kynning á viðbragðsáætlun

Í síðustu viku kom slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Fjallabyggðar í skólann og hélt kynningu fyrir nemendur og starfsfólk á viðbragðsáætlunum sem til staðar eru fyrir skólann sem og viðbrögðum við eldsvoða. Í kjölfar kynningarinnar og umræðna um efni hennar var æfð skyndirýming í skólahúsnæðinu með starfsfólki og nemendum þar sem ýmsir neyðarútgangar voru notaðir. Að lokinni rýmingu var farið yfir hvernig hún gekk fyrir sig með gagnrýnum augum og hugað að því sem betur mátti fara. Starfsfólkið fékk svo leiðsögn í notkun slökkvitækja og eldvarnarteppa og fékk tækifæri til að æfa sig á réttu handtökunum. Viðbragðsáætlun skólans og viðbragðsleiðbeiningar má sjá á þessari slóð: https://www.mtr.is/is/skolinn/aaetlanir-og-stefnur
Lesa meira