Lýsandi heiti áfanga: Íþróttafræði
Fjöldi framhaldsskólaeininga: 5
Undanfari: LÝÐ1A03 og LÝÐ1B02 eru æskilegir
Lýsing á efni áfangans: Þjálfunarformin og aðferðir innan þeirra, skipulagning þjálfunar til lengri og skemmri tíma,
siðfræði íþrótta og próf/mælingar íþróttamanna.
Lokamarkmið áfangans:
- Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu þjálfunarformunum og þeim aðferðum sem finnast innan þeirra
- mikilvægi þess að skipuleggja þjálfun bæði til lengri og skemmri tíma
- þeim siðfræðilegu sjónarmiðum sem finnast í íþróttum
- mikilvægi þess að prófa/mæla íþróttamenn
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma þær aðferðir sem finnast innan hvers þjálfunarforms
- setja upp þjálfunaráætlun til lengri og skemmri tíma
- sjá kosti og galla þeirra siðfræðilegu atriði sem upp geta komið í íþróttum
- velja rétt próf fyrir íþróttamenn út frá því hvað eigi að prófa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta hvaða aðferð innan þjálfunarformanna sé hentugust hverju sinni
- skipuleggja þjálfun einstaklings og hóps til lengri og skemmri tíma
- meta og taka réttu ákvörðunina út frá þeim siðfræðilegu sjónarmiðum íþrótta
- framkvæma hin ýmsu próf/mælingar rétt
Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar.
Birt með fyrirvara um breytingar