Lýsandi heiti áfanga: Yndislestur
Framhaldsskólaeiningar: 5 einingar
Undanfari: amk. 10 einingar í ensku á 2. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn gengur út á að nemendur lesi enskan texta sér til ánægju og yndisauka. Í stað tímasóknar er lögð
áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda þar sem þeir nýta tímann til lesturs og verkefnavinnu sem tengist textanum.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- mismunandi tegundum bókmennta
- enskum bókmenntum og samfélaginu eins og það birtist í bókmenntum
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta
- skilja meginefni óstytts bókmenntatexta.
- vnna með nýjan orðaforða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á ensku um efni sem hann hefur kynnt sér til hlýtar
- átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
- tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar