10.12.2010
Nemendur skólans settu upp sýningu í sýningarsal Fjallabyggðar í Ráðhúsinu í
Siglufirði og stóð sýningin yfir á meðan á listgöngunni stóð. Fjölmargir skoðuðu verk nemenda enda virkilega skemmtileg verk og
mikil vinna á bak við þau.
Guðný Ágústsdóttir nemandi skólans tók
myndir á sýningunni sem má skoða hér.
Lesa meira
10.12.2010
Nemendur skipulögðu og héldu styrktartónleika fyrir Barnaspítala Hringsins og söfnuðu 347.000
krónum. Þetta var mikið verk sem þau völdu sér í námi sínu og einstaklega vel heppnað.
Hér má sjá myndir frá viðburðinum sem
Gísli Kristinsson tók.
Lesa meira
07.12.2010
Í dag stóð hópur nemenda í Menntaskólanum á
Tröllaskaga fyrir innanhúsmóti í fótbolta fyrir unglingadeild Grunnskóla Fjallabyggðar. Mótið er
verkefni í sprotaáfanga þar sem nemendur vinna eigin verkefni, alveg frá hugmynd til
lokaframkvæmdar.
Það er óhætt að segja að mótið hafi gengið vel og vakið lukku meðal unglinganna. Mikið kapp var í liðunum og
réðust úrslit í verðlaunasætum ekki fyrr en eftir bráðabana.
Hér er hægt að skoða myndir sem Inga
Eiríksdóttir tók á mótinu.
Lesa meira
03.12.2010
Þriðjudaginn 7. desember verð Jólatónleikar á vegum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga til styrktar Barnaspítalasjóði
Hringsins
Tónleikarnir eru verkefni hóps nemenda í svokölluðum Miðannaráfanga við Menntaskólann á Tröllaskaga.
Í áfanganum vinna nemendur eigin verkefni, alveg frá hugmynd til lokaframkvæmdar.
Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og hefur hugmyndaflug nemenda ráðið för. Auk skipulagningar jólatónleikanna, hefur verið haldinn
flóamarkaður og LAN-mót. Haldið verður innanhússmót í fótbolta fyrir unglinga n.k. þriðjudag, gefa á út
uppskriftabæklinga á netinu og gera á viðhorfskönnun hjá eldri grunnskólanemendum um sameiningu skólanna. Einnig er hópur að
skoða markaðsmöguleika fyrir hestaleigu á svæðinu svo eitthvað sé nefnt.
Áfanginn hefur einmitt miðað að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa,
framkvæma og þróa eigin hugmyndir.
Lesa meira
01.12.2010
Greiðsluseðlar fyrir efnisgjöld á haustönn fóru út fyrir stuttu, allt of seint að okkar mati en annir hafa verið miklar við að koma
skólanum í gang. Við viljum biðjast velvirðingar á því en efnisgjöldin eru sem hér segir:
Inngangur að listum 2.000.-
Listljósmyndun 2.000.-
Myndlist 4.000.-
Gjöldin verða innheimt fyrr á vorönn.
Lesa meira
25.11.2010
Samkvæmt heimasíðu Fjallabyggðar verður breytt fyrirkomulag á skóla- og frístundaakstri frá 30. nóvember og fram að
áramótum
Hér má sjá breytta
aksturstöflu fyrir 30. nóvember til 5. desember.
Lesa meira
19.11.2010
20. og 21. nóvember verður haldinn flóamarkaður í húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga til styrktar nemendafélagi
Menntaskólans. Opnunartími er 13 - 17 bæði laugardag og sunnudag og heitt kaffi á könnunni. Fjórir nemendur skólans þær Arndís,
Hildur, Bergdís og Aldís eru með fullt af sniðugu dóti en minna á að þær eru ekki með posa. Myndir hér
Lesa meira
02.11.2010
Hægt er að sækja um skólavist í Menntaskólanum á Tröllaskaga dagana 1.-26. nóvember
á http://framhaldsskolar.menntagatt.is/innritun/
Athugið að erfitt er að fást við umsóknir sem berast eftir þann tíma. Þeir sem þegar hafa sótt um eru beðnir um að staðfesta
umsóknirnar.
Lesa meira
29.10.2010
Mánudag og þriðjudag, 1. og 2. nóvember, verða engar áætlunarferðir/skólaakstur vegna vetrarfrís
Grunnskóla Fjallabyggðar.
Lesa meira
28.10.2010
Í dag komu í skólann félagar í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness þau Sævar, Kristín Helga og Ottó og færðu skólanum
Galíleósjónauka að gjöf. Einnig fengum við tvö eintök af tímariti félagsins um stjörnufræði. Okkur þótti
þetta einstaklega gleðilegt og merkilegt framtak og þökkum fyrir þessa frábæru gjöf.
Lesa meira