Vorsýning á laugardag

Bergþór Morthens og Gísli Kristjánsson leggja lokahönd á sýninguna í skólahúsinu.
Ljósm. Björg Trau…
Bergþór Morthens og Gísli Kristjánsson leggja lokahönd á sýninguna í skólahúsinu.
Ljósm. Björg Trausta.

Vorsýning nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga verður í húsnæði skólans laugardaginn 13. maí frá kl. 13 - 16. Einnig verða rafrænar sýningar á vef skólans. Til sýnis verður afrakstur vinnu nemenda á vorönn undir einkunnarorðum skólans; frumkvæði - sköpun - áræði.

Á sýningunni í skólahúsinu eru aðallega verk nemenda í myndlist en rafrænar sýningar eru á verkum úr fjölmörgum námsgreinum, t.d. íslensku og tungumálum, listljósmyndun, félagsvísindagreinum, líffræði og stærðfræði auk þess sem þar verða einnig myndlistarsýningar.

Sýningin í skólahúsinu verður opin fram að útskrift þann 20. maí en rafrænu sýningarnar verða aðgengilegar á vef skólans sem og sýningar fyrri ára þannig að þar verða til góðar heimildir um skapandi vinnu nemenda skólans í gegn um árin.

Smellið hér til að sjá rafrænu sýningarnar