Vitundarvakning um frið

Friðardagur mynd GK
Friðardagur mynd GK

Í gær var alþjóðlegur dagur friðar. Dagurinn er tileinkaður heimsfriði og er haldinn hátíðlegur 21. september ár hvert. Dagurinn var tekinn upp af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og var fyrst haldinn 1982. Á þessum degi er skorað á þjóðir heims að stöðva átök og hernaðaraðgerðir og stuðla að vitundarvakningu í menntastofnunum og hjá almenningi um málefni er snúa að friði. MTR er UNESCO-skóli og árlega velja nemendur nokkra alþjóðadaga til að vera með dagskrá sem tengjast þeim málefnum sem dagarnir gefa tilefni til. Undanfarin ár hefur alþjóðlegur dagur friðar verið fastur liður og nemendaráð skólans og kennarar hafa skipulagt dagskrá á þeim degi til að vekja athygli á mikilvægi friðar.

Dagskráin í ár hófst á því að nemendur og starfsfólk kom saman á sal þar sem sýnt var ávarp frá António Guterres,framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, þar sem hann sagði m.a.: „Á þessum alþjóðlega friðardegi skulum við láta hugrekki þeirra sem berjast fyrir friði í hverfum, kennslustofum og samfélögum vera okkur innblástur. Og við skulum skora á leiðtoga heimsins að fjárfesta í friðsamlegri framtíð fyrir alla”. Að ávarpinu loknu voru flutt tvö áhrifarík friðarljóð og nemendur sköpuðu síðan saman listaverk þar sem málaðar voru myndir og skrifuð orð sem tengdust friði. Einnig mynduðu viðstaddir orðaský með því að skila inn orðum sem þau tengdu við frið.

Í hádeginu var boðið upp á tónlist með friðarboðskap og þar komu fram Stephan Weyerer, tónlistarmaður frá Þýskalandi sem um þessar mundir er í listamannadvöl í Brimsölum í Ólafsfirði og Þórarinn Hannesson, kennari skólans. Fluttu þeir m.a. eigin lög og lagið Imagine eftir John Lennon. Að hádegishléi loknu var Kahoot-spurningakeppni undir stjórn nemendaráðs, sem bæði nemendur og starfsfólk þátt í. Allar spurningarnar snérust um málefni er varða frið og dýpkuðu skilning á hugtakinu.

Tókst dagskráin vel; boðskapur dagsins skilaði sér til nemenda og vakti upp umræður um mikilvægi friðar fyrir okkur öll. Myndir