Velkomin í skólann 19. ágúst

Ólafsfjörður. Mynd: Lára Stefánsdóttir
Ólafsfjörður. Mynd: Lára Stefánsdóttir

 

Búið er að taka þá nemendur út sem ekki hafa staðfest skólavist með greiðslu innritunargjalds og taka þá inn sem voru á biðlistum í staðinn. Skólinn er yfirfullur og erum við þakklát fyrir hversu margir vilja stunda nám hjá okkur. 

Skóli hefst samkvæmt skóladagatali þann 19. ágúst 2019 klukkan 8:10. Skólameistari heldur stutt ávarp þar sem hún m.a. kynnir starfsmenn skólans og nemendur hitta umsjónarkennara sína. Eftir það hefst kennsla samkvæmt stundaskrá. Nemendur geta séð hvaða áfanga þeir eru skráðir í í námsferli sínum í Innu þar sem stundataflan verður aðgengileg frá 12. ágúst. Allt efni bæði fyrir fjarnema og staðnema (sama efnið) er aðgengilegt í Moodle 19. ágúst og fyrsti lokaskiladagur verkefna í vikulotu er 25. ágúst. Allar upplýsingar skólans eiga bæði við staðnema og fjarnema.

Þann 19. ágúst fer rúta frá Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði kl. 7:40 og frá Dalvíkurskóla kl. 7:50. Strætó fer frá Hofi á Akureyri kl. 7:59. 

Fundur með forráðamönnum nemenda er 28. ágúst klukkan 17:00 í skólanum. 

Við hlökkum til að byrja skólaárið, hitta ykkur öll og vinna saman í vetur. Munið að taka tölvurnar og farsímana með.