Konudagur mynd Emilía Sigrún
Gott og fjölbreytt starf er unnið á listabraut skólans og þar hafa margir nemendur fengið góðan grunn og kynnst tækni til að þróa sína listsköpun áfram. Einn þeirra nemenda sem hefur blómstrað í námi sínu undanfarnar annir er Emilía Sigrún Karlsdóttir en hún hefur stundað fjarnám við skólann og er að útskrifast með stúdentspróf af listabraut í næsta mánuði. Hún vann áhugavert lokaverkefni í ljósmyndaáfanga s.l. vor, lokaverkefni sem nú er orðið að sýningu í höfuðborginni. Sýningin kallast Endurtekning og er í Borgarbókasafninu í Spönginni.
Í kynningu á sýningunni segir m.a.: Emilía Sigrún er 24 ára Kópavogsbúi og er að ljúka stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Tröllaskaga um þessar mundir. Hún er alin upp við myndlist þar sem faðir hennar er myndlistarmaður og hún því vön að hafa allskonar fólk á veggjunum heima sér. Frá barnæsku hefur hún verið módel í myndunum föður síns, bæði í myndskreytingum bóka og málverkum. Hún er því vön að klæða sig í mismunandi búninga og setja aðstæður á svið. Núna má segja að hlutverk hennar hafi snúist við því að þessu sinni er hún skaparinn og endurskapar með ljósmyndum gömul málverk föður síns af fjölskyldu og vinum.
Hún valdi nokkur verk úr safninu og vann með þau.
,,Ég valdi föt á fyrirsæturnar en auðvitað var ekki hægt að nota nákvæmlega sömu föt og hluti og þegar myndirnar voru málaðar t.d. var ekki auðvelt að herma eftir málverki af pabba með mig nýfædda svo ég varð að láta dúkku í staðinn. Ég stillti svo upp og tók tíma í að finna réttu stellingarnar og svipina til þess að líkjast fyrirmyndinni eins og hægt er en það verður aldrei alveg eins því viðfangsefnið hefur breyst í útliti í gegnum árin.“
Sýningin er sem fyrr segir í Borgarbókasafninu í Spönginni. Hún opnaði þann 4. nóvember og verður opin til 18. janúar.