Upphaf skólastarfs í MTR

Ólafsfjarðarvatn mynd GK
Ólafsfjarðarvatn mynd GK

Skóli hefst þriðjudaginn 18. ágúst klukkan 8:10 og kennt verður að mestu þann dag samkvæmt stundaskrá. Fjarnám hefst eins og venja er á sama tíma. Í nýjum reglum um takmörkun á samkomum vegna farsóttar er slakað á fjarlægðarmörkum í framhaldsskólum. Nú skal tryggja að hægt sé að viðhalda eins metra bili milli manna í stað tveggja metra sem er almenna reglan. Fyrir okkur í MTR þýðir þetta að hægt verður að hefja skólastarf með nokkurn vegin eðlilegum hætti. Hámarksfjöldi í einu sóttvarnarrými er áfram eitt hundrað persónur en reglurnar sem taka gildi 14. ágúst má lesa hér.

Mikilvægt er að allir fylgi eins meters reglunni, sótthreinsi borð og snertifleti bæði þegar komið er að þeim og þegar skilið er við. Lögð verður áhersla á sóttvarnir a.m.k. einu sinni á dag. Nemendur skulu í núverandi ástandi ekki fara úr skóm í anddyri heldur vera í þeim og geyma yfirhafnir á stólbökum en minnka notkun á fatahengi eins og unnt er. Hver og einn þarf að leggja áherslu á sínar sóttvarnir, handþvott, fjarlægðarmörk og nota maska þegar kröfur eru gerðar um þá samkvæmt sóttvarnareglum.

Gert er ráð fyrir að mötuneyti skólans verði opið en þar verður gætt sérstaklega vel að sótthreinsun snertiflata og alls búnaðar og jafnframt að fjarlægðarreglunni.

Einstaklingar í hópi nemenda eða starfsmanna sem telja sig hafa málefnalegar ástæður fyrir því að mæta ekki í skólann eru beðnir samkvæmt ákvörðun neyðarstjórnar að hafa samband við Láru Stefánsdóttur, skólameistara.

Við þurfum að gera ráð fyrir að reglur breytist með mis miklum fyrirvara í allan vetur og því er sjálfsagi mikilvægur til að reglum sé fylgt í hvívetna til að minnka smithættu eins og mögulegt er.

Við starfsmenn skólans hlökkum virkilega til að fá nemendur í hús og hefja skólastarfið með bros á vör.