Undarlegir tímar

Vetur. Mynd: Lára Stefánsdóttir
Vetur. Mynd: Lára Stefánsdóttir

Allt hefur gengið vel fyrstu vikuna, nemendur eru duglegir að mæta í tíma samkvæmt stundaskrá. Við tökum stöðuna eftir helgi aftur og allar ábendingar vel þegnar. Sigurður Mar Halldórsson sem kennir listljósmyndun og frumkvöðlafræði tók upp gott myndband sem hann kallar„Undarlegir tímar“ með skilaboðum til sinna nemenda sem við öll í skólanum gerum að okkar.