Hópmynd með leikskólabörnum mynd GK
Síðasta vika var miðannarvika í skólanum. Í þeirri viku vinna kennarar að námsmati en nemendur sitja tveggja eininga áfanga sem að þessu sinni snerist um að útbúa og talsetja vandað lesefni fyrir börn. Markmið áfangans var m.a. að vekja nemendur til meðvitundar um mikilvægi þess að búa vel að íslenskukennslu fyrir nýja íbúa samfélagsins, án þess að útiloka íslensk börn, og stuðla að auknum skilningi á hlutverki tungumáls í námi, samskiptum og samfélagslegri þátttöku. Var vinnu vikunnar einnig ætlað að stuðla að því að nemendur upplifðu að verk þeirra hafi tilgang og gildi utan skólastofunnar og þeir geti tekið þátt í að efla læsi, aðgengi og inngildingu í samfélaginu.
Nemendur unnu með myndskreyttar stuttar sögur með enskum texta, þýddu efnið yfir á íslensku þar sem lögð var áhersla á skýrt, einfalt og lifandi mál sem hentar börnum. Nemendur leiklásu síðan sögurnar þannig að úr urðu myndbönd sem líkjast lesinni barnabók. Nemendur skiluðu frábærri vinnu og til urðu tæplega 40 myndbönd. Eftir lokafrágang verða þau gerð aðgengileg á netinu svo foreldrar og börn geta notið saman. Henta þau sérstaklega vel foreldrum sem ekki hafa tök á að lesa fyrir börnin sín á íslensku.
Til að meta hvernig til hefði tekist fengum við góða gesti í skólann á fimmtudeginum. Elstu börnin af leikskólanum Leikhólum á Ólafsfirði komu í heimsókn og horfðu og hlýddu á afrakstur vinnunnar. Voru þau mjög áhugasöm, héldu athyglinni vel og leist vel á, sérstaklega þegar leiklesturinn var líflegur. Fannst þeim mjög spennandi að geta horft á þessi myndbönd síðar heima með mömmu og pabba.
Á föstudeginum fóru nemendur inn á Akureyri þar sem farið var í klifur í hinni glæsilegu aðstöðu hjá 600klifur og síðan á skauta í Skautahöllinni. Á báðum stöðum sýndu nemendur glæsileg tilþrif og allir skemmtu sér vel eins og myndirnar bera með sér. Myndir
Það voru fulltrúar frá Via Nostra sem sáu um skipulag og kennslu í miðannarvikunni líkt og á síðustu önn.
Hér má sjá tvö sýnishorn af vinnu vikunnar :
Vináttugjöf hins vingjarnlega höfrungs
Þakkláta stjarnan