Stór plokkdagur í Ólafsfirði

Afrakstur plokkdagsins. Nemendur 7. bekkjar grunnskólans lögðu duglega í púkkið.
Ljósm. SMH
Afrakstur plokkdagsins. Nemendur 7. bekkjar grunnskólans lögðu duglega í púkkið.
Ljósm. SMH

Við í MTR látum okkur umhverfismál varða og gerum eins vel og við getum í að minnka kolefnissporið okkar með vistvænum ferðamáta, lágmarks matarsóun og flokkun á öllum úrgangi.

Stóri plokkdagurinn var haldinn á landsvísu síðasta sunnudaginn í apríl og því enginn í skólanum. Þriðjudaginn á eftir var hins vegar plokkdagur í skólanum og fengum við nemendur frá Eistlandi og Lettlandi í lið með okkur en þau voru hér í námsferð.

Þennan sama dag héldu nemendur 7. bekkjar grunnskólans út að plokka en Vatnsendaskóli í Kópavogi hafði skorað á þau. Þennan dag var því mikið plokkað í Ólafsfirði og eftir daginn var kominn myndarlegur haugur af rusli eftir daginn.