Menntaskólinn á Tröllaskaga er heilsueflandi framhaldsskóli og leggur áherslu á að hlúa að líkamlegri sem andlegri heilsu nemenda og starfsfólks. Er það gert með ýmsum hætti og má þar m.a. nefna árlega þátttöku starfsfólks í Lífshlaupinu, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Lífshlaupið stóð yfir allan febrúarmánuð að þessu sinni og tók fjöldi vinnustaða vítt og breitt um landið þátt.
Rúmur helmingur starfsfólks MTR var með í ár og hreyfði sig í rúmar 22 þúsund mínútur þær fjórar vikur sem átakið stóð. Um 160 vinnustaðir voru í flokki skólans, vinnustaðir með 10-29 starfsmenn, og endaði skólinn í 72. sæti. Er það heldur lakari árangur en áður en það er nú ekki aðalatriðið heldur það að gera fólk meðvitað um gildi hreyfingar fyrir líkama og sál. Fjölbreytnin var mikil í vali á hreyfingu okkar starfsfólks því alls voru skráðar 26 mismunandi tegundir hreyfingar. Ganga var mest stunduð síðan líkamsrækt og crossfit og þá skíði og jóga. Meðal annarra hreyfitegunda má nefna dans, hjól, hlaup, hnefaleika, skauta, sleðaferðir og sund. Allt svo hressandi og skemmtilegt!