Stafrænar aðferðir við erlent samstarf

Skólameistarar mynd GK
Skólameistarar mynd GK

Nordplusverkefni MTR og tveggja framhaldskóla í Eistlandi og Lettlandi var formlega ýtt úr vör í morgun. Nemendur úr skólunum þremur munu skoða sameiginlega fleti í menningu og umhverfi og æfa sig í fjarvinnslu milli landa. Skólameistararnir þrír hittust og hittu nemendur MTR í morgun og var atburðinum streymt á síðu verkefnisins.

Hópur MTR-nema vinnur að þessu verkefni alla miðannarvikuna en samstarfið við nemendur í Eistlandi og Lettlandi heldur áfram á næsta skólaári, vonandi í formi nemendaheimsókna. Markmiðið er að nemendur öðlist þjálfun í að safna og vinna úr upplýsingum með mismunandi aðferðum og miðla efni lipurlega á milli landa í alþjóðlegu samstarfi. Fjarvinna og samstarf af þessu tagi hefur tekið stórt stökk á covidtímanum og mun bara halda áfram að aukast þannig að það er nauðsynlegt fyrir nemendur að undirbúa sig fyrir slíkt vinnuumhverfi.

Kennarar í miðannaráfangnum þar sem grunnurin verður lagður í þessu fjölþjóðlega verkefni eru Áslaug Inga Barðadóttir, Ida Semey og Tryggvi Hróflsson. Myndir