Stærðfræðikeppni í tuttugu ár

Hópmynd GK
Hópmynd GK

Úrslit í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og níundu bekkja í grunnskólum á Norðurlandi vestra og Tröllaskaga fór fram í Ólafsfirði í dag. Í fyrsta sæti varð Hildur Heba Einarsdóttir í Árskóla á Sauðárkróki. Jódís Helga Káradóttir í Varmahlíðarskóla í Skagafirði varð í öðru sæti og Styrmir Þeyr Traustason í Dalvíkurskóla í þriðja. Vegleg verðlaun voru veitt fyrir þessi þrjú sæti.  Keppnin var jöfn og spennandi og keppendur allir sjálfum sér og skólum sínum til sóma. Þetta er í tuttugasta sinn sem keppnin er haldin. Myndir