Rafíþróttir mynd GK
Um árabil hefur skólinn átt í góðu samstarfi við skólann New College Lanarkshire (NCL) í Skotlandi. Hófst það samstarf á Ecomedia Evrópuráðstefnu í Rúmeníu árið 2016, en á slíkum ráðstefnum er sjónum beint að upplýsingatækni í skólastarfi. Kennarar MTR sóttu síðar slíka ráðstefnu til kollega sinna í Skotlandi og fulltrúar skoska skólans komu til okkar þegar við héldum slíka Evrópuráðstefnu hjá okkur. Þegar aðstoðarskólameistara MTR og einum kennara okkar var boðið að sækja ráðstefnu í NCL í fyrra kviknuðu hugmyndir að frekara samstarfi og að virkja nemendur í því.
Fyrstu drög að slíku samstarfi voru á dögunum þegar skorað var á lið MTR í rafíþróttum að mæta tveimur liðum úr NCL. Úr urðu tvær skemmtilegar viðureignir sem mikið var lagt í því þeim var streymt í skólanum úti með kynnum og öllu saman. Hafði okkar lið betur í báðum tilfellum en allir skemmtu sér vel og kynni tókust með nemendum og þar með var tilganginum náð. Frekara samstarf er í farvatninu og verður spennandi að sjá hvernig þessi vinabönd skólanna þróast. Myndir