Söngurinn ómar á öskudegi

Öskudagur
Öskudagur

Að venju var lif og fjör í skólanum hjá okkur á öskudegi. Þó nokkrir úr hópi nemenda og starfsfólks mættu í búningum og svo birtust ungar ofurhetjur, prinsessur, geimfarar, kúrekar, indíánar, sjóræningjar og ýmsar furðuverur og tóku lagið okkur til yndisauka. Lagaúrvalið var fjölbreytt, allt frá einföldum barnalögum til flóknari lagasmíða. Að launum fengu söngfuglarnir bráðhollan og næringarríkan ólafsfirskan harðfisk og héldu á næsta stað með bros á vör. Myndir