Sluppu ómeidd eftir bílveltu

Mikil mildi að ökumaður og farþegar sluppu ómeidd. Ljósm. HÚK.
Mikil mildi að ökumaður og farþegar sluppu ómeidd. Ljósm. HÚK.

Fjórir nemendur skólans sluppu ómeidd úr bílveltu á afleggjaranum að Hauganesi í morgun. Mikil hálka og hvassviðri var á staðnum. Bíllinn var á lítilli ferð og endaði á hvolfi utan vegar

Nemendurnir voru á leið til Akureyrar að keppa í Gettu betur í kvöld og hugðust vera á undan veðrinu. í frétt Rúv er haft eftir lögreglunni að vindhviða hafi feykt bílnum út af veginum með fyrrgreindum afleiðingum.

Ökumaður og farþegar komust sjálf út úr bílnum og létu vita af sér. Þau bíða nú veðrið af sér á Hauganesi þar sem einn þeirra býr og fara í læknisskoðun í fyrramálið enda ekkert ferðaveður á þessum slóðum.

Eins og fyrr segir áttu nemendurnir að keppa við Kvennaskólann í Gettu betur í kvöld. Þeirri viðureign hefur verið frestað til miðvikudags og voru stjórnendur keppninnar hjá RÚV og keppnislið Kvennaskólans fljót að bregðast við af tillitsemi og breyta áætlunum sínum.