Silja Jóhannesar Ástudóttir,
Silja Jóhannesar Ástudóttir, kennaranemi við Háskólann á Akureyri, lauk nýverið
vettvangsnámi við Menntaskólann á Tröllaskaga. Þar kynntist hún kennsluháttum,
fjarnámsumhverfinu og þróunarstarfi skólans. Á kennarafundi í gær deildi hún
reynslu sinni og upplifun af vettvangsnáminu og veru sinni í skólanum með starfsfólki
skólans. Gaf hún góðfúslegt leyfi til að birta helstu atriði í frétt á heimasíðu skólans.
„Það sem stóð helst upp úr var hvernig skýrt skipulag og skýrar væntingar fara
saman við sjálfstæði og sköpun. Mér fannst einnig áhugavert hvernig listum er gert
hátt undir höfði í skólanum, ekki bara í gegnum listnámið, heldur einnig á göngum
skólans því það er á við besta listasafn að koma þarna inn. Þá upplifði ég að
starfsfólk er tæknilega fært og sjálfbært sem skilar sér til nemenda skólans og nýtist
gríðarlega vel í fjarnámsumhverfinu. Þótti mér sérstaklega ánægjulegt að fara yfir
verkefni frá nemendum og sjá sjálfsöryggi þeirra í notkun fjölbreyttra miðlunarleiða.
Þá er búið að flétta inn í allt starf menningu sem miðar að samstarfi starfsfólks og
deilingu þekkingar. Þetta allt í bland er að mínu mati helsti styrkur skólans,“ segir
Silja.
Hún bætir við að skólinn sé einnig framarlega í erlendu samstarfi og sé með
skipulagða vinnu hvað það varðar. Það sé einnig ríkur þáttur í því þróunar- og
sköpunarumhverfi sem hún upplifði.
Námsumhverfi og hópavinna
„Eitt sem ég velti fyrir mér á meðan á vettvangsnáminu stóð var hvernig félagsgeta
nemenda er efld í gegnum hópavinnu og samvinnu því ég veit að það er áskorun í
fjarnámsumhverfinu. Það var því gaman að komast að því að skólinn er að vinna
markvisst með þennan þátt í samræmi við ábendingar úr gæðamati. Hefur meðal
annars verið leitað að forritum sem styðja samvinnu í fjarnámi og eru kennarar
skólans nú með eitt slíkt í prófun. Mér fannst þetta endurspegla vel viljann til að prófa
nýjar leiðir sem ég upplifði svo sterkt í skólanum.“
Reynslan af vettvangsnáminu í MTR styrkti áhuga Silju á námsumhverfi þar sem
tæknin styður fjölbreytt verkefni og nemendur fá svigrúm til að nýta styrkleika sína.
„Ég tek með mér margar hugmyndir og aukinn áhuga á möguleikum fjarnáms. Ég vil
þakka starfsfólki MTR kærlega fyrir góðar móttökur og fyrir að deila reynslu sinni og
sýn opinskátt með mér,” segir Silja að lokum.