Skólasetning á föstudag

MTR mynd GK
MTR mynd GK

Menntaskólinn á Tröllaskaga verður settur í Tjarnarborg, föstudaginn 18. ágúst kl. 8:10 og öllum velkomið að mæta þar. Að setningu lokinni hitta nemendur umsjónarkennara sína en að því búnu hefst kennsla samkvæmt stundaskrá. Stundaskrá verður í Innu og nemendum bent á að glöggva sig á henni. skólabyrjun verður í vetur kl. 8:10 og verður skólaakstri breytt til samræmis við það.  Akstur frá Siglufirði kl. 07:40 og Dalvíkurbyggð 7:50. Nýtt húsnæði verður tekið í notkun þann 25. ágúst n.k.