Skapandi hannyrðir

Í áfanganum kynnast nemendur mismunandi aðferðum við hannyrðir, svo sem prjóni, hekli, útsaum og hnýtingum. Verk listamanna sem getið hafa sér gott orð á þessu sviði, eru skoðuð og nemendur kynna verk þeirra hver fyrir öðrum. Teknar verða fyrir stefnur á borð við hannyrðapönk þar sem iðkendur nota hannyrðir til að koma skoðunum sínum á framfæri. Nemendur vinna með mismunandi efni og hafa mikið val um hvert þeir stefna í sköpuninni. Meðal verkefna sem unnið er að eru heklaðar skreytingar á húsgögn skólans. Þær verða væntanlega, ásamt öðrum verkum úr áfanganum, á vorsýningu skólans í maí. Myndir