Sjósund í vorblíðunni

Sjósund mynd GK
Sjósund mynd GK

Nemendur í lýðheilsuáföngum vorannar luku önninni með stæl með því að stökkva í sjóinn og ýta aðeins við sogæðunum eins og kennari þeirra talar um, en þau eru orðin mjög örugg í því að vaða í sjóinn eftir að hafa farið í nokkur skipti í íþróttatímum í vetur. Veðrið lék við þau í morgun og enduðu þau svo tímann í heita pottinum. Myndir