Síðasti kennsludagur mynd ÞH
Það er bara svona; síðasti kennsludagur annarinnar í dag og nemendur ganga brosandi út í sumarið. Veðurblíðan hefur leikið við okkur að undanförnu svo síðustu kennsludagarnir voru litaðir mikill útiveru og fjöri. Blaknet var sett upp á lóð skólans og var það mikið notað, bæði af nemendum og kennurum og ýmsir spreyttu sig í frisbígolfi en aðstaða til að stunda þá skemmtilegu íþrótt var útbúin við skólann fyrir nokkrum árum. Einnig var skellt í hinn árlega Tarzan-leik í skólalok. Sumir létu þó góðviðrið ekki trufla sig við námið og stunduðu það af kappi hvort sem var innandyra sem utan. Sólin er þó ekki besti vinur tölvuskjánna og var ýmsum brögðum beitt til að geta stundað nám og yfirferð verkefna auk þess að njóta sólarinnar.
Framundan er svo Vorsýning skólans, laugardaginn 17. maí, þar sem til sýnis er afrakstur vinnu annarinnar. Næsta vika er helguð námsmati hjá kennurum og föstudaginn 23. maí munu um 50 nemendur setja upp hvíta kollinn þegar útskrift fer fram á sal skólans. Myndir