Plokkdagur í dag

Mjög góð þátttaka var í plokkdeginum.
Ljosm. GK.
Mjög góð þátttaka var í plokkdeginum.
Ljosm. GK.

Nemendur á öllum skólastigum tóku höndum saman í morgun og plokkuðu í bænum. Auk nemenda MTR tóku leikskólabörn og nemendur 5. - 9. bekkjar grunnskólans þátt í plokkinu.

Stóri plokkdagurinn er haldinn um land allt 30. apríl en þar sem það var á sunnudegi hefur skapast sú hefð að hafa plokkdag í skólanum í vikunni þar á eftir. Sólin skein á plokkarana sem söfnuðust saman við Menntaskólann með afraksturinn og gæddu sér á ávöxtum eftir vel heppnað plokk.

Fleiri myndir úr sólinni hér.