Piparkökur og vöfflur

Nemendafélagið Trölli skellti í vöfflur í morgun í tilefni af yfirvofandi jólafríi, eins og formaðurinn komst að orði. Sísvangir nemendur gæddu sér á vöfflunum og höfðu vel af rjóma og sultu með. Piparkökur voru skreyttar með súkkulaði og glassúr og settu hátíðlegan blæ á samverustundina í Hrafnavogum. Myndir