Haustið 1995 ákvað ríkisstjórn Íslands að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Haldið hefur verið upp á þennan dag síðan til að beina athygli þjóðarinnar að stöðu tungunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu.
Í tilefni dagsins sáu íslenskukennarar í MTR um dagskrá á sal skólans þar sem athygli var sérstaklega beint að nýyrðasmíði. Þar var vöngum m.a. velt yfir því hvaða orð ná fótfestu í daglegu máli og hver falla ekki í kramið og áhersla lögð á að mikilvægt væri að leika sér með tungumálið. Einnig var athyglinni beint að nýyrðasmíði Jónasar Hallgrímssonar, sem var án efa einn þekktasti og áhrifamesti orðasmiður íslenskrar tungu, og kom ýmsum á óvart hversu mörg orð sem við notum enn í daglegu máli eru frá honum komin.
Þá var komið að nemendum að spreyta sig í að búa til ný orð eða endurhugsa notkun þekktra orða. Nokkrum hlutum var stillt upp á borð og áttu þau að koma með hugmyndir að heitum á þessum hlutum. Þarna komu fram áhugaverðar tillögur eins og t.d. pennavirki, yfir hlut með mörgum hólfum sem pennar og önnur skrifáhöld eru látin standa í. Bursti sem settur er undir vél til að þrífa gólf skólans fékk heitið gólfsleikja og bretti, sem hægt er að rugga sér á og kennarar nota gjarnan þegar þeir vinna standandi við tölvurnar til að auka blóðflæði og hreyfingu, fékk heitið veltingur.
Í lok dagskrár tóku nemendur svo þátt í að velja orð ársins inn á vef Ríkisútvarpsins.