Opnað eftir sumarleyfi

MTR mynd GK
MTR mynd GK

Nú er allt komið í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi. Kennarar eru við undirbúning náms en starfsfólk skrifstofu og stjórnendur eru mætt í hús til að vinna að sínum undirbúningi. Við hlökkum til vetrarins, margt spennandi framundan, margir erlendir gestir koma ásamt því að nemendur og kennarar verða á faraldsfæti. 

Fyrst fá kennarar námskeið styrkt af Erasmus+ 15. og 16. ágúst um sköpunarþjálfun en Søren Hansen prófessor við Álaborgarháskóla kemur og kennir.

Því næst heimsækja skólann þátttakendur í verkefni sem kallast TrinE, Telerobotics in Education og koma gestir frá Möltu, Austurríki, Þýskalandi, Grikklandi og Akureyri. Verkefnið fjallar um nærverurnar okkar, hvernig þær eru notaðar í kennslu. Þá koma gestir frá endurmenntunarstofnun kennara CEP frá Lanzarote til að kynna sér náms- og kennsluaðferðir okkar. Þá tekur við vinnufundur í verkefni sem kallast "Actice citizenship and democratic participation", mjög spennandi verkefni sem verið er að skilgreina nánar. Síðan koma kennarar frá Póllandi en kennarar okkar hafa verið að leiðbeina þeim í verkefni sem kallast "Connected Learning - popularization of international and intercultural cooperation of students online, developing skills of the 21st century”. Þá koma nemendur frá Lanzarote og Ítalíu til okkar í verkefni um mat og menningu, nemendum gefst kostur á að fara í sirkusskóla til Brussel í miðannarviku og einnig að fara til Lanzarote í verkefnið um mat og menningu. Þessi verkefni eru styrkt af Evrópusambandinu í Erasmus+ verkefninu, EFTA um samstarf við lönd í austanverðri Evrópu og síðan Nordplus sem er á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. 

Margt fleira spennandi er á döfinni. Þetta verður skemmtilegur vetur.