Halloween mynd BT
Hrekkjavaka er á næsta leiti og í tilefni af henni skoraði nemendaráð skólans á nemendur sem starfsfólk að mæta í búningum tengdum hefðum þessarar hátíðar sem hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi á undanförnum árum. Hrekkjavakan er þó byggð á fornum siðum og á uppruna sinn í keltnesku hausthátíðinni Samhain, sem var haldin í lok október til að fagna upphafi vetrar. Svipaðir siðir voru við lýði á Norðurlöndum fyrir kristnitöku. Hinn gamli norræni mánuður vetur hófst einmitt á þessum tíma ársins, við lok sláturtíðar í lok október, og skilum milli sumars og vetrar var fagnað á svokölluðum veturnóttum. Þá hélt heiðið fólk dísablót með fórnum, áti og drykkju og hét á dísirnar um vernd gegn forynjum og illum vættum sem fylgdu skammdeginu.
Í dag er hrekkjavakan á Íslandi þó helst undir áhrifum frá bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Mátti sjá þess merki í búningavali nemenda og starfsfólks skólans sem tók vel í áskorun nemendaráðs og mætti nokkuð ógnvænlegt til náms og starfa í gær. Myndir