Nýnemadagur miðvikudaginn 12. september 2018

Hefðbundin kennsla fellur niður eftir kl. 10:30 miðvikudaginn 12. september þegar við gerum okkur dagamun til að bjóða nýnema skólans velkomna. Góðir gestir koma í heimsókn og líf og fjör verður vonandi bæði úti og inni.
Á nýnemadeginum verður keppt í sápubolta (ef veður leyfir), hægt verður að fara í sund og prófa ýmislegt innahúss. Tölvuklúbburinn kynnir starfsemi sína og nemendur MTR hafa tækifæri til að kynnast stefnumálum þeirra sem bjóða sig fram til setu í nemendaráði Nemendafélagsins Trölla. Í kjölfarið hefst svo rafræn kosning í nemendaráðið fyrir nemendur MTR. Að sjálfsögðu verða veglegar veitingar að hætti Bjargar.