Nýnemadagur í blíðskaparveðri

Hörku barátta í sápuboltanum.
Ljósm. SMH
Hörku barátta í sápuboltanum.
Ljósm. SMH

Nýnemar voru boðin velkomin í dag en í MTR er ekki busavígsla heldur nýnemadagur sem einkennist af samveru og fjöri. Veðrið lék við nemendur í dag og dagskráin var hefðbundin. Fyrir hádegið var sápuboltamót og í hádeginu var grillveisla. Að því loknu fjölmenntu nemendur í sund. Auk nemenda MTR var unglingastiginu í Grunnskóla Fjallabyggðar og 10 bekk Dalvíkurskóla boðið að taka þátt í deginum svo það var fjölmennt og góðmennt. Nemendafélagið Trölli skipuleggur nýnemadaginn sem er í boði skólans.

Fleiri myndir frá sápuboltanum hér.