Í MTR notum við kennslukerfið Moodle og hefur það reynst okkur vel. Líkt og önnur kerfi er það í sífelldri endurskoðun til að vera í takti við nýjustu stefnur í kennslufræðum og til að halda í við tækninýjungar. Reglulega bætast því nýir möguleikar við kerfið sem auka gæði þess fyrir nemendur og kennara. Ýmis fyrirtæki vinna að tækninýjungum sem hægt er að tengja við þau kennslukerfi sem eru notuð í dag og kynna þau gjarnan þessar nýjungar á kennslugagnasýningum vítt og breitt um heiminn.
Á einni slíkri sýningu komust kennarar skólans í kynni við hollenska fyrirtækið FeedbackFruits sem bauð upp á spennandi ný verkfæri sem hægt er að tengja Moodle. Verkfæri þessi bjóða upp á fjölbreytta möguleika til að efla samvinnu, virkja nemendur og auka samskipti nemenda og kennara hvort sem er í námi sem er alfarið á netinu, kennt á staðnum eða í blönduðu námi. Kerfið býður einnig upp á að hafa námsferli, þar sem hægt er að blanda saman ýmsum tólum sem leiða nemendur í gegnum fjölbreytt skref að ákveðnu markmiði. Rímar það vel við það leiðsagnarmat sem við notum hér í skólanum. Var ákveðið að fara í samstarf við hollenska fyrirtækið um innleiðingu einhverra þessara verkfæra. Er MTR fyrsti framhaldsskólinn á Íslandi sem ræðst í það verkefni en flestir íslensku háskólanna hafa tekið einhver þeirra í notkun. Að kynnast þessum verkfærum strax í framhaldsskóla ætti að undirbúa nemendur enn frekar undir það nám sem bíður þeirra þegar í háskóla er komið.
Þriggja manna teymi kennara við skólann hefur leitt innleiðingu þessara verkfæra og verið í nánu samstarfi við FeedbackFruits. Hefur teymið þegar prófað 11 þeirra 19 verkfæra sem í boði eru og frætt aðra áhugasama kennara skólans á því hvernig þau virka og nýtast. Í kjölfarið á því hafa fleiri verið að prófa sig áfram og er mikill áhugi meðal kennara skólans að nýta sér þessi nýju tól. Á önninni hafa þegar um 200 nemendur skólans skilað verkefnum í gegnum þessi nýju verkfæri og hafa umsagnir þeirra um notkun þeirra verið mjög góðar. Þykja þau skilvirk, þægileg og jafnvel skemmtileg að vinna með.
Í síðustu viku komu tveir fulltrúar fyrirtækisins í skólann til okkar til að fylgja verkefninu eftir. Voru þeir sérstaklega ánægðir með þann metnað sem kennarar skólans höfðu lagt í verkefnið og líta bjartsýnum augum á áframhaldandi samstarf sem mun auka fjölbreytni í námsmati og efla virkni og samvinnu nemenda.
