Nemandi úr MTR verðlaunaður

Margrét Hlín mynd GK
Margrét Hlín mynd GK

Menntavísindasvið Háskóla Íslands vinnur árin 2026 - 2028 að rannsókninni Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum og hefur rannsóknin undirtitilinn Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda. Þar sem heiti rannsóknarinnar er ekki sérlega þjált ákvað stjórnendateymi hennar að fá nemendur í þátttökuskólunum til liðs við sig að finna aðgengilegt nafn á rannsóknina og að hanna merki hennar. Í mars sl. var send út áskorun til skólanna og var henni vel tekið í MTR þaðan sem flestar tillögurnar komu.

Á dögunum bárust okkur svo þau gleðitíðindi að nemandi skólans, Margrét Hlín Kristjánsdóttir, hefði átt vinningstillöguna í nafnasamkeppninni. Tillaga hennar: MIRA, þótti frumleg, einföld og alþjóðleg. Hugtakið MIRA vísar í ólíkum tungumálum til mikilvægra þátta sem snerta markmið verkefnisins og mismunandi verkþætti þess. Algengasta merking þess kemur úr spænsku og merkir “sjáðu” eða “líttu á”, í slavneskum tungumálum þýðir orðið “friður” eða “heimur”. Aðspurð segir Margrét að svo djúpar pælingar hafi þó ekki verið að baki tillögunni, henni hafi bara þótt orðið fallegt og að það hljómaði vel.

Í pósti frá stjórnunarteymi rannsóknarinnar er Margréti þakkað kærlega fyrir þátttökuna og þetta góða nafn sem verður notað á jafnt innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Mun hún fá afhent verðlaun á Málþingi og kynningu á verkefninu þann 15. október nk. í Veröld – húsi Vigdísar.

Hér eru nánari upplýsingar um verkefnið:

Verkefnið MIRA kannar með hvaða hætti stefna og starf UNESCO framhaldsskóla á Íslandi endurspeglar umræðu um mannréttindi, sjálfbærni og frið. Í verkefninu vinna kennarar og rannsakendur í sameiningu að þróun kennslufræðilegrar nálgunar sem styður við lýðræðislega þátttöku nemenda og félagslega tengslamyndun. Rannsóknin fer fram á tímabilinu 2026 - 2028 og er unnin í samvinnu við Félag Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi sem heldur utan um vinnustofur kennara og nemenda. Niðurstöður verkefnisins nýtast í rauntíma inn í kennslu og til eflingar á náms- og félagsumhverfi nemenda en verða einnig þegar fram í sækir hluti af stærra samanburðarverkefni sem snýr að útfærslu UNESCO skóla um allan heim á heimsmarkmiði 4.7. Rannsóknaraðilar frá Japan, Englandi og Írlandi koma að verkefninu og munu meðal annars leiða fyrstu vinnustofur kennara. Verkefnið fékk styrk frá Menntarannsóknarsjóði Mennta- og barnamálaráðuneytisins árið 2025.

Hér er slóð á vefsíðu verkefnisins www.borgaravitund.hi.is