MTR er Stofnun ársins 2025

Verðlaunaafhending mynd frá sameyki.is
Verðlaunaafhending mynd frá sameyki.is

Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru tilkynntar á hátíð Sameykis í Reykjavík í gær, þann 12. febrúar, en titlana Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í níu þáttum að mati starfsfólks þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða. Þættirnir níu eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti. Þetta framtak Sameykis er ómetanlegt, þarna fæst mæling á viðhorfi starfsmanna til vinnustaðar síns og við getum notað gögnin í innra mat og til að bæta starfsemina. 

Stofnun ársins nær til 35 þús starfsmanna á opinberum vinnumarkaði og tilgangurinn er fyrst og fremst að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.

Útnefnt er í þremur flokkum og eftir fjölda á vinnustað og varð Menntaskólinn á Tröllaskaga í efsta sæti í flokki minni ríkisstofnana en í þeim flokki voru rúmlega 50 stofnanir. MTR hlaut því titilinn Stofnun ársins í þeim flokki og gerði gott betur því MTR fékk hæstu einkunn allra þeirra 140 ríkisstofnana sem tóku þátt. Hefur skólinn nú verið í einu af efstu þremur sætunum í sínum flokki í rúman áratug þar af í efsta sæti fimm sinnum.

Lára Stefánsdóttir, skólameistari, og nokkrir kennarar skólans voru viðstaddir hátíðina í gær og veittu verðlaununum viðtöku.

Hér má sjá nánari fréttir af niðurstöðum úr Stofnun ársins 2025