Móttaka á Bessastöðum

Nemendur á Bessastöðum
Nemendur á Bessastöðum

Heimsókn nema frá Tías á Lanzarote og PT skólanum á Ítalíu til okkar á Tröllaskaga tókst sérlega vel þótt veðurguðirnir hjálpuðu ekki beinlínis til. Heimsókninni lauk með boði hjá Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessastöðum í gær. Fulltrúar ítölsku og spænsku nemendanna færðu honum gjafir. Hann sagði eitt það besta við að gegna þessu embætti að fá að taka á móti gestum víða að og njóta samveru við þá. Forsetinn bauð upp á hefðbundnar íslenskar veitingar, meðal annars kaffi, pönnukökur og kleinur. Hann spjallaði óformlega við gestina og gerði að gamni sínu. Margir tóku sjálfur með forsetanum. Á Tröllaskaga dvöldu gestirnir hjá fjölskyldum og var almenn ánægja með gistinguna og samskiptin við fjölskyldurnar. Gestgjafarnir, nemendur í MTR fylgdu gestum sínum suður ásamt kennurum sem sinna samstarfsverkefninu. Það snýst um að efla nemendur í dreifðum byggðum í því að finna leiðir til að takast á við framtíðina í hörðum heimi. Erlendu nemunum fylgdu fimm kennarar og þrír af kennurum MTR sinntu móttökunni. Allir hlakka til síðasta áfanga í þessu verkefni sem fram fer á Ítalíu á vorönninni.

Hér má sjá umfjöllun um heimsóknina á síðu Forseta Íslands.