Listamaður mánaðarins

Listamaður mánaðarins mynd GK
Listamaður mánaðarins mynd GK

Hin nýju salarkynni skólans bjóða upp á ýmsa möguleika, m.a. hefur aðstaða til sýningarhalds batnað til mikilla muna með tilkomu þeirra. Í mars var hleypt af stokkunum nýju verkefni í skólanum, verkefni sem ætlað er að efla tengsl skólans og samfélagsins. Verkefnið felst í því að í hverjum mánuði sem skólahald fer fram verður einum listamanni af svæðinu boðið að sýna verk sín á afmörkuðu svæði í sal skólans. Verða verkin nemendum og starfsfólki skólans til yndisauka auk þess sem íbúum svæðisins og gestum er velkomið að líta inn og skoða þau. Einnig mun listafólkið segja nemendum á listabraut frá verkunum, vinnuaðferðum sínum og listsköpun.

Fyrsti „listamaður mánaðarins“ var Guðrún Þórisdóttir, eða Garún eins og hún kallar sig. Hafa verk hennar verið til sýnis í skólanum síðastliðin mánuð. Hún er búsett í Ólafsfirði og hefur unnið þar að list sinni. Hún var kjörin bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2012, hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.  Garún ræddi við nemendur á listabraut í vikunni og hlustuðu þau af athygli.

Listamaður apríl mánaðar verður Arnfinna Björnsdóttir frá Siglufirði, sem var bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2017. Mun sýning með verkum hennar opna þann 11. apríl og vera uppi fram undir vorsýningu skólans er fer fram þann 12. maí.