Listalíf í Gautaborg

Dagana 15. - 20. mars dvöldu nokkrir nemendur af listnámsbraut í Gautaborg til að kynna sér söfn, myndlistarskóla, gallerí og vinnustofur listamanna þar í borg. Flogið var frá Akureyri til Manchester og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem tekin var lest yfir til Svíþjóðar. Það var ekki að ástæðulausu að Gautaborg varð fyrir valinu því þar býr og starfar myndlistarkennari skólans Bergþór Morthens meirihluta ársins. Hann skipulagði áhugaverða dagskrá fyrir nemendur sem sáu og upplifðu ýmislegt spennandi á listasviðinu auk þess að kynnast menningu Svíþjóðar. Tilgangur ferðarinnar var að auka víðsýni nemenda sem og þekkingu á ólíkum stefnum og stílum í myndlist.

Fyrsta daginn var farið í grasagarð til að skoða arkitektúr og fjölbreyttan gróður sem og í stærsta almenningsgarð borgarinnar, Slottsskogen, þar sem m.a. er dýragarður með ýmis skandinavísk dýr. Einnig var gengið um gamla hluta borgarinnar þar sem nemendur upplifðu líflegt mannlíf og kynntust sænskri kaffihúsamenningu auk þess að beina athyglinni að hönnun gamalla bygginga.

Dagur tvö var helgaður Listasafni Gautaborgar, Konstmuseet, þar sem farið var um sali og fjölbreytt verk skoðuð. Þar tóku nemendur einnig upp skissubækur og teikniáhöld og reyndu sig í teikniæfingum til að dýpka skilning á formi, línum og teiknitækni. Var það góð upphitun fyrir þriðja daginn þar sem farið var í skólaheimsóknir. Fyrst var formleg heimsókn í Domen Konstskola, einn fremsta listaskóla Svíþjóðar, og síðan var litið inn í listaháskólann HDK Valand. Þótti nemendum mjög fróðlegt að sjá hvernig kennslan fer fram í þessum skólum og þá glæsilegu aðstöðu sem þar er í boði. Þennan dag var Heiðbrá Sól, fjarnemi við MTR sem búsett er í Gautaborg, með hópnum.

Síðustu tveir dagarnir voru helgaðir heimsóknum á söfn og vinnustofur listafólks. Markmiðin voru annars vegar að skoða samtímalist og hönnunarsögu og hins vegar að sjá listamenn við störf í sínu raunverulega vinnuumhverfi. Þótti nemendum sérlega áhugavert að komast í návígi við fjölbreyttan hóp listafólks sem sinnti ýmiskonar list, sjá vinnuaðstöðu þeirra og ræða við þau um listsköpun og líf listafólks.

Ferðin var hin ánægjulegasta, þó ferðalagið til Svíþjóðar hafi verið nokkuð krefjandi, og sáu nemendur margt fróðlegt og áhugavert. Milli dagskrárliða var tíminn nýttur til að versla og fá sér að borða á fjölbreyttum veitingastöðum og kaffihúsum. Svo þurfti að sjálfsögðu líka að sinna heimanáminu, því líkt og allar aðrar námsvikur í MTR þurfti að skila sínum verkefnum í hinum ýmsu greinum í síðasta lagi á sunnudagskvöldi. Myndir