Dagur bókarinnar er 23. apríl og var það Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem átti frumkvæðið að því að gera þennan dag að alþjóðadegi bóka. Markmiðið er að hvetja fólk, og þá einkum ungt fólk, til að lesa meira og kynna sér verk þeirra fjölmörgu höfunda sem hafa auðgað líf mannkyns um aldir. Svo skemmtilega vill til að að Nóbelskáldið okkar, Halldór Laxness, fæddist 23. apríl.
Sem UNESCO-skóli var skipulögð dagskrá hjá okkur í MTR í tilefni dagsins, var hún haldin 21. apríl þar sem sá 23. er frídagur þetta árið. Starfsfólkið greip með sér sínar uppáhaldsbækur að heiman og voru þær til sýnis og skoðunar á sal skólans. Nemendur og starfsfólk tóku þátt í skemmtilegri spurningakeppni um bókmenntir þar sem 30 fjölbreyttar spurningar reyndu á kunnáttu svarenda í hinum ýmsu bókmenntagreinum. Einnig svöruðu bæði nemendur og kennarar könnun þar sem spurt var um uppáhaldsbækur þeirra og ástæðuna fyrir því vali. Voru niðurstöður settar upp í líflegt orðaský. Að lokum lék Hamingjubandið, skipað kennurum og nemanda, nokkur lög við góðar undirtektir. Í tilefni dagsins urðu fyrir valinu lög sem samin hafa verið við íslensk ljóð.
Tókst vel til og líflegar umræður sköpuðust um bækur og bókmenntir og þar með var tilganginum náð. Myndir