Líflegir hópar í heimsókn

Ljósmyndun mynd GK
Ljósmyndun mynd GK

Það hefur verið gestkvæmt hjá okkur að undanförnu, svona á milli óveðursdaga. Við höfum m.a. fengið til okkar tvo nemendahópa til að kynna sér hvernig náminu hjá okkur er háttað og hvernig lífið gengur fyrir sig í skólanum. Fyrir tveimur vikum komu nemendur 10. bekkjar Dalvíkurskóla í heimsókn og í morgun voru það 10. bekkingar í Grunnskóla Fjallabyggðar sem sóttu okkur heim. Báðum hópum var skipt upp í smærri einingar sem fóru á milli stöðva í skólahúsinu. Þeirra biðu ýmis verkefni og kynningar til að fá innlit í skólastarfið. Fulltrúar nemendaráðs höfðu útbúið spurningar um skólann sem þau lögðu fyrir gestina auk þess sem þau sögðu frá félagsstarfi nemenda og skólastarfinu eins og það kemur nemendum fyrir sjónir. Í listastofunni spreyttu gestirnir sig í að teikna hvert annað, í ljósmyndastofunni voru teknar líflegar myndir auk þess sem gripið var í hljóðfæri og slegið á létta strengi. Náms-og starfsráðgjafi kynnti gestunum hvernig náminu er háttað, gerði grein fyrir hinu mikla erlenda samstarfi sem skólinn á í og ýmsu fleira spennandi sem er í gangi hjá okkur og síðast en ekki síst var farið í heimsókn í tölvuleikjastofuna þar sem leiknin í hinum ýmsu leikjum var reynd. Að loknu hópastarfinu var boðið upp á pizzuveislu og þótti það ekki ónýtt.

Var ekki annað að sjá og heyra en gestirnir væru ánægðir með það sem bar fyrir augu og eyru og þó nokkrir lýstu yfir áhuga á að koma hér til náms næsta haust. Þökkum við þessum líflegu hópum fyrir komuna og vonumst til að sjá þau sem flest hér næsta vetur. Myndir