Leikur í námi

Tryggvi Hrólfsson kennari í ensku og sögu var klæddur í sérstaka búninga og málaður í morgun. Það gerðu nemendur og var athöfnin verðlaun fyrir virkni á önninni. Önnur uppáfærslan verður hluti af lokaverkefni þriggja nemenda í sögu á sýningu á verkum nemenda á laugardag. Viðfangsefnið er tíska og förðun kvenna á tuttugustu öld. Fyrirmyndin að hinu gervinu er sótt til leikritsins Ávaxtakörfunnar.

Verðlaunin sem að framan er lýst eru umbun nemenda og hvíla á aðferð leikjavæðingar í kennslu og námi. Leikjavæðing gengur út á að nota aðferðir úr leikjum til að auka virkni nemenda. Myndir