Haustið 2025 hlaut skólinn Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu (European Innovative Teaching Award – EITA) fyrir verkefnið „Heimsmarkmiðin í öllu skólastarfi – lýðræðislegt samfélag í framkvæmd“ sem er heildræn og skapandi nálgun skólans að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í allt skólastarf. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra kennara sem nýta nýstárlegar, gagnvirkar og aðgengilegar aðferðir til að ryðja brautina fyrir bjartari framtíð komandi kynslóða. Áherslan var „Virk borgaravitund“ og að mati dómnefndar hefur MTR náð sérstaklega góðum árangri á því sviði með því að virkja starfsfólk og nemendur, meðal annars í Erasmus+ verkefnum. Verkefnið byggir á þeirri hugsjón að menntun eigi ekki aðeins að miðla fræðilegri þekkingu, heldur móta meðvitund, siðferðiskennd og virkni ungs fólks sem borgara í lýðræðislegu og sjálfbæru samfélagi.
Ida Semey, kennari skólans, sem leitt hefur hið öfluga erlenda samstarf sem skólinn á í, tók við verðlaununum úti í Brussel sl. haust þar sem verkefnið var fulltrúi Íslands. Með verðlaununum fylgdi styrkur til að kynna verkefnið og hefur Ida hafið þá kynningu.
Í síðustu viku hélt hún erindi í tveimur framhaldsskólum. Fyrst var haldið í Menntaskólann á Laugarvatni og síðan siglt til Vestmannaeyja þar sem annar kennari skólans, Bryndís Stefánsdóttir, slóst í hópinn þegar FÍV var heimsóttur. Í erindinu fjölluðu þær um verðlaunaverkefnið og sérstaklega mikilvægi virkar borgaravitundar og lýðræðislegra vinnubragða. Erlent samstarf skólans, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem eru tvinnuð inn í allt skólastarf í MTR, námsefnisgerð kennara, traustið og liðsheildin sem hefur myndast í skólanum var einnig til umræðu. Erindinu var mjög vel tekið á báðum stöðum, kennarar spurðu margs og líflegar umræður sköpuðust. 
Á næstunni mun Ida fara í fleiri framhaldsskóla og flytja erindi sitt um virka borgaravitund sem snýst um að nemendur séu og verði virkir þegnar í þjóðfélaginu og geti tekið þátt í umræðu um ýmis málefni samfélagsins.