Hvað er fegurð og hvað er ljótleiki?

Hið mynd BM
Hið mynd BM

Sýningin Hið í Pálshúsi

Þessum spurningum hafa nemendur í Fagurfræðiáfanga við Menntaskólann á Tröllasaga verið að velta fyrir sér. Afraksturinn verður til sýnis föstudaginn 4.maí kl. 16:00 þegar sýningin, Hið opnar í Pálshúsi á Ólafsfirði.

Nemendurnir hafa verið að skoða myndlist frá sjónarhóli fagurfræðinnar. Sýningin samanstendur af verkum sem fjalla um hið fagra, hið háleita og hið gróteska.
Túlkun þeirra er ólík og nálgast hver viðfangsefnið með sínum hætti.

Sýningin er aðeins þessa helgi og er opin frá föstudegi kl.16 – 18 og laugardegi frá kl. 13 – 16.